Eftir BS próf í líffræði og nokkurra ára starf sem líffræðingur og menntaskólakennari hóf Kristinn nám hjá Guðmundi Jónssyni við Söngskólann Í Reykjavík. Síðan lærði hann hjá Helene Karusso í Vínarborg og John Bullock í Washington DC.
Hann hefur komið fram í óperu- og tónleikahúsum víðsvegar um heim í meir en þrjá áratugi, svo sem New York, San Francisco, Los Angeles, Milano, London, Berlín, Amsterdam, Brüssel, Tokyo og Beijing.
Hann hefur sungið yfir 100 óperuhlutverk. Meðal þeirra má nefna Gurnemanz(Parsifal), König Heinrich(Lohengrin), Daland(Hollendingurinn Fljúgandi), Landgraf(Tannhäuser), König Marke(Tristan og Ísold), Rocco(Fidelio), Baron Ochs (Rósariddarinn), LaRoche (Capriccio), Mephistopheles(Faust) og Osmin (Brottnámið úr kvennabúrinu) Hann hefur haldið marga ljóðatónleika á Íslandi, aðallega með Jónasi Ingimundarsyni. Þeir hljóðrituðu Svanasöng og Vetrarferð Schuberts, auk nokkurra diska með íslenskum og erlendum sönglögum. Hann hefur auk þess tekið upp Vetrarferðina með Víkingi Ólafssyni.
Af öðrum upptökum má nefna
Don Giovanni og Töfraflautuna undir stjórn Arnolds Östman(Decca), Jóhannesar- og Mattheusarpassíu Bachs með Franz Bruggen(Phillips) Szenen aus Goethes Faust eftir Schumann undir stjórn Philippe Heereweghe(Harmonia Mundi), Fidelio undir stjórn Sir Colin Davis(London Symphony Orchestra), Die Gezeichneten eftir Franz Schreker, stj. Lothar Zagrosek(Deutsche Grammophon) The Ghosts of Versailles eftir John Corigliano undir stjórn James Conlon (Los Angeles Óperan). Sú upptaka vann til tvennra Grammy-verðlauna í febrúar 2017
Meðal viðurkenninga sem Kristinn hefur hlotið eru:
1983: Philadelphia Opera prize og Opernwelt-verðlaunin í Belvedere
óperusöngvarakeppninni í Vín
1991: Stämgaffeln – Det klassiska svenska fonogrampriset
1995: Íslensku tónlistarverðlaunin
1995: Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu
2005: Bæjarlistamaður Kópavogs
2010: Íslensku tónlistarverðlaunin
2011: Íslensku tónlistarverðlaunin
2011: Útflutningsverðlaun Forseta Íslands og Íslandsstofu
2015: Grímuverðlaun – Söngvari ársins
2016: Íslensku tónlistarverðlaunin – Heiðursverðlaun.
2017: Grammy awards