STAÐUR & STUND

25. janúar, 2018

Úrslit svæðistónleika Nótunnar 2017

Söngskólinn í Reykjavík sendi frá sér tvö atriði á svæðistónleika Nótunnar 2017, sem fram fór um helgina í Grafarvogskirkju. Á svæðistónleikunum voru veittar viðurkenningar og nótuverðlaun til þeirra atriða sem valin voru til að taka þátt í Lokahátíð Nótunnar.

Bæði atriðin sem tóku þátt fyrir hönd Söngskólans í Reykjavík komust áfram!

 

Einar Dagur Jónsson tók þátt í flokki einleiks-/einsöngsatriða. Hann söng aríu Taminos úr Töfraflautunni eftir W.A. Mozart, Dies Bildnis ist bezaubernd schön. Antonia Hevesi lék undir með Einari Degi sem er nemandi Egils Árna Pálssonar söngkennara. Fyrr á árinu tók Einar Dagur þátt í söngkeppni Vox Domini og hlaut þar verðlaunasæti á framhaldsstigi.

 

Atriðið á okkar vegum í samleiks-/samsöngsflokki var í höndum Nemendaóperunnar. Þau sungu Quintett úr Töfraflautunni eftir W.A. Mozart, Hm hm hm, undir handleiðslu Sibylle Köll og Hrannar Þráinsdóttur. Quintettinn skipuðu: Salný Vala Óskarsdóttir, Jara Hilmarsdóttir, Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Birgir Stefánsson og Einar Dagur Jónsson. Salný Vala og Jara eru nemendur Hörpu Harðardóttur, Hanna Ágústa er nemandi Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur, Birgir er nemandi Bergþórs Pálssonar og Einar Dagur er, eins og fyrr hefur komið fram, nemandi Egils Árna Pálssonar.

Við viljum óska þessum glæsilega hópi söngvara, söngkennara, píanóleikara og leikstjóra innilega til hamingju með árangurinn og við hlökkum til að sjá þau koma fram á Lokahátíð Nótunnar í Eldborgarsal Hörpu, sunnudaginn 2. Apríl 2017.

25. janúar, 2018

Úrslit svæðistónleika Nótunnar 2017

Söngskólinn í Reykjavík sendi frá sér tvö atriði á svæðistónleika Nótunnar 2017, sem fram fór um helgina í Grafarvogskirkju. Á svæðistónleikunum voru veittar viðurkenningar og nótuverðlaun til þeirra atriða sem valin voru til að taka þátt í Lokahátíð Nótunnar. Bæði atriðin sem tóku þátt fyrir hönd Söngskólans í Reykjavík komust áfram!   Einar Dagur Jónsson tók þátt í flokki einleiks-/einsöngsatriða. Hann söng aríu Taminos úr Töfraflautunni eftir W.A. Mozart, Dies Bildnis ist bezaubernd schön. Antonia Hevesi lék undir með Einari Degi sem er nemandi Egils Árna Pálssonar söngkennara. Fyrr á árinu tók Einar Dagur þátt í söngkeppni Vox Domini og hlaut þar verðlaunasæti á framhaldsstigi.   Atriðið á okkar vegum í samleiks-/samsöngsflokki var í höndum Nemendaóperunnar. Þau sungu Quintett úr Töfraflautunni eftir W.A. Mozart, Hm hm hm, undir handleiðslu Sibylle Köll og Hrannar Þráinsdóttur. Quintettinn skipuðu: Salný Vala Óskarsdóttir, Jara Hilmarsdóttir, Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Birgir Stefánsson og Einar Dagur Jónsson. Salný Vala og Jara eru nemendur Hörpu Harðardóttur, Hanna Ágústa er nemandi Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur, Birgir er nemandi Bergþórs Pálssonar og Einar Dagur er, eins og fyrr hefur komið fram, nemandi Egils Árna Pálssonar. Við viljum óska þessum glæsilega hópi söngvara, söngkennara, píanóleikara og leikstjóra innilega til hamingju með árangurinn og við hlökkum til að sjá þau koma fram á Lokahátíð Nótunnar í Eldborgarsal Hörpu, sunnudaginn 2. Apríl 2017.
Scroll to Top

Hér á síðunni er að finna flest það sem þú þarft að vita um Söngskólann, en ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband við okkur. Skrifstofan er opin frá 9 – 16 alla virka daga.

HAFA SAMBAND

SAMFÉLAGSMIÐLAR

STAÐSETNING