
“Nám í Söngskólanum hefur fært mér mikið sjálfstraust”
Vera Sif Brynjudóttir, nemi í Miðdeild
Miðdeild
Miðdeild Söngskólans í Reykjavík er fyrir þá sem hafa lokið Grunnnámi eða jafngildis þess. Nemendur þurfa því að hafa staðgóðan grunn í raddbeitingu, nótnalestri og tónfræði. Tvisvar á vetri er gefinn kostur á prófum og geta nemendur tekið prófið á áföngum, eða lokið því með einu prófi, Miðprófi.
Markmið söngnámsins við Söngskólann í Reykjavík er að kenna nemendum heilbrigða raddbeitingu, túlkun og framkomu. Námið er einstaklingsmiðað þar sem nemandinn ákveður sína stefnu; hvort sem það er stóra óperusviðið, rytmíska sviðið eða heilsusamleg raddbeiting sem nýtist í hvaða starfi sem er. Nemendur eru þjálfaðir í sviðsframkomu og öðlast færni í að syngja fyrir áheyrendur, lesa nótur og skilja tónfræði.