7 vikna söngnámsskeið - Kennsluskrá
Vegna Covid 19
Við gætum þess að uppfylla allar kröfur Þórólfs og Víðis. En án gamans þá munum við gæta allra þeirra reglna sem settar hafa verið og gætum tveggja metra reglunnar í söngkennslunni og gætum í hvívetna fjarlægðarmarka í hópkennslu. Þar sem fjarlægðarmörk verður ekki hægt að uppfylla, munum við nota sóttvarnargrímur.
Söngtækni / Túlkun
30 mín söngur – einkatímar, í samráði við kennara
Söngkennarar Söngskólans: Egill Árni Pálsson, Garðar Thór Cortes, Harpa Harðardóttir, Íris Erlingsdóttir, Kristín R. Sigurðardóttir, Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Sibylle Köll, Signý Sæmundsdóttir, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir og Viðar Gunnarson
Tónfræði
Mánudaga kl. 17:15 – Framhaldsnemendur (45 mín)
Mánudaga kl. 18:00 – Byrjendur (45 mín)
Kennari: Elfa Dröfn Stefánsdóttir
Söngtúlkun / Framkoma
Tvisvar á námskeiðinu á fimmtudögum frá kl. 16:30
Söngur/túlkun m. píanóundirleik – allur hópurinn 1,5 – 2,0 klst. – tímalengd fer eftir fjölda
Umsjón Íris Erlingsdóttir og Elín Guðmundsdóttir píanóleikari
Söngumsögn / Tónleikar
Námskeiðum lýkur með söngumsögn og tónleikum
Reglan er: Allir taka þátt, en þeir nemendur sem sótt hafa tvö námskeið eða fleiri fá söngumsögn og syngja einsöng á tónleikunum
Námskeiðsgjald:
- Byrjendanámskeið: kr. 56.000 (Öll námsgögn innifalin)
- Framhaldsnámskeið: kr. 49.000